Víkin - Sjóminjasafn í Reykjavík
Varðskipið Óðinn
Varðskipið Óðinn er hluti af Víkinni - Sjóminjasafninu og um leið ein helsta sýning safnsins. Það leynist margt í varðskipi, en Óðinn var smíðaður í Álaborg í Danmörku árið 1959, 910 tonn að stærð, 63 m á lengd og 10 m á breidd. Skipið er með sérstaklega styrkt stefni og byrðing fyrir siglingar í ís. Um borð eru tvær aðalvélar sem skila 18 sjómílna ganghraða, ásamt ljósavélum. Siglinga- og fjarskiptatæki voru ætíð af bestu gerð. Dráttarspil var 20 tonna, fyrir 3 km langan dráttarvír.
Óðinn tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum á 20. öldinni. Öflugasta vopn skipsins var 57 mm fallbyssa, staðsett á palli fyrir framan brúna. Þekktasta og árangursríkasta vopnið í þorskastríðunum var þó togvíraklippurnar, sem sjá má á afturdekki skipsins.
Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip. Hann dró alls tæplega 200 skip til lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð. Einnig dró hann flutninga- og fiskiskip 14 sinnum úr strandi. Þá bjargaði skipið áhöfnum strandaðra skipa þrisvar sinnum og tvisvar bjargaði það áhöfnum sökkvandi skipa.
Óðinn sinnti almennu veiðieftirliti alla tíð og beindist það bæði að íslenskum og erlendum skipum. Fylgjast þurfti með hvar var veitt og hvernig veiðarfærin voru. Einnig var Óðinn oft kallaður til þegar ófærð var í landi og erfiðleikar við fólks- og vöruflutninga, ekki síst í afskekktustu byggðum landsins. Þyrla var oft notuð þegar mikið lá við í sjúkarflutningum.
Yfir sumartímann er Óðinn opinn alla daga en einungis er hægt að fara um borð með leiðsögumanni. Leiðsagnir eru þrjár hvern dag, kl. 13:00, 14:00 og 15:00.
Yfir vetrartímann eru leiðsagnir á virkum dögum kl. 13:00, 14:00 og 15:00. Um helgar eru þær kl. 14:00 og 15:00. Einungis er farið í skipið ef veður leyfir og þurfa að vera minnst 3 gestir til að ferð sé farin.
AÐVÖRUN
Þegar farið er um borð í skip sem hannað er til sérstakra starfa á sjó þarf ýmislegt að hafa í huga til að tryggja öryggi:
* Gætið að háum þröskuldum og ójöfnum á gólfi
* Sums staðar er lágt til lofts og hvöss horn
* Stigar eru brattir
* Skipið hentar ekki fólki sem fær innlokunarkennd, er lofthrætt eða hefur skerta hreyfigetu
Börn yngri en 12 ára skulu ætíð vera í fylgd með fullorðnum
Börn eru á ábyrgð forráðamanna
Opnunartími
Opið í vetur:
þri.-fös. kl. 11:00-17:00
lau.-sun. kl. 13:00-17:00
Leiðsagnir um skipið ef það eru 3 gestir eða fleiri











