Víkin - Sjóminjasafn í Reykjavík
Lífæð lands og borgar
„Hér höfðu því engin smátíðindi gerst í sögu Reykjavíkur. Ráðist var í stærstu framkvæmdir sem nokkurn tíma höfðu verið unnar á Íslandi, framkvæmdir sem áttu eftir að færa höfuðstaðnum yfirburðastöðu á sviði verslunar, siglinga og fiskveiða.”
Sýningin var opnuð 1. desember 2007 í tilefni þess að í nóvember sama ár voru 90 ár liðin frá því að fyrstu framkvæmdum við gerð Reykjavíkurhafnar lauk formlega árið 1917. Eins og fram kemur í tilvitnun í Sögu Reykjavíkur hér að framan var um stórbrotna framkvæmd að ræða sem hafði gífurlega þýðingu fyrir vöxt og viðgang borgarinnar. Á sama tíma var margt að gerast í þjóðfélaginu sem boðaði nýja tíma. Þar léku útgerð og siglingar stórt hlutverk, vélaöldin var að ryðja burt skútum og árabátum og Íslendingar loksins að eignast eigið félag til kaupsiglinga. Gerð Reykjavíkurhafnar, stofnun Eimskips og togaravæðingin voru í raun tákngerving „flugtaks” Íslands úr fátækt fyrri alda yfir í tæknivætt ríkidæmi nútíma samfélags, og þá sér í lagi í höfuðstaðnum Reykjavík. Með hafnargerðinni 1913 – 1917 varð til griðarstaður skipa og báta, sem var lífsnauðsynlegur í uppbyggingu landsins.
Hafnarsýningin er sett upp í fyrrum vélarsal Bæjarútgerðar Reykjavíkur, en salurinn býður upp á nýstárlega möguleika í sýningahaldi og hefur fengið nafnið Bryggjusalurinn. Salurinn er aflokaður með hátt til lofts og þar hefur verið smíðuð 17 metra löng og rúmlega 5 metra breið trébryggja ofan á stöpla sem nú þegar eru í salnum og sjór látinn flæða umhverfis.
Gengið er inn í sýningarsalinn í gegnum Gullfoss frá 1915, út á þilfarið og þaðan niður landgang á bryggjuna sjálfa. Þilfar Gullfoss var endurgert frá sjó og upp í loft, þannig að sýningargestir á bryggjunni sjá fyrir sér skipið vera að leggjast að bryggjunni. Sýningargestir verða um leið hluti af sýningunni og glæða hana lífi, því fólkið á bryggjunni sér gestina á þilfarinu sem farþega í skipinu og gestir á þilfarinu sjá fólkið á bryggjunni sem íbúa Reykjavíkur að fylgjast með skipakomunni. Ætlunin er að þessi rammi, sem verður utan um hafnarsýninguna, verði varanlegur og að hægt verði í framtíðinni að setja upp margvíslegar sýningar og uppákomur í sérstöku umhverfi Bryggjusalarins.

Horft af bryggjunni upp á þilfarið á Gullfossi frá 1915.

Gísli, hafnarverkamaður, stjórnar uppskipun á bryggjunni.

Umhverfis bryggjuna flæðir sjór úr höfninni og þar má sjá lífríkið. Á myndinni hér að ofan sést vel ígulker og ef grannt er skoðað grillir í krabba neðst til vinstri á myndinni.

Opnunartími
Opið í vetur:
þri.-fös. kl. 11:00-17:00
lau.-sun. kl. 13:00-17:00
Leiðsagnir um skipið ef það eru 3 gestir eða fleiri











